Ég bý í sveit - málþing
11.11.2025
Almennt - tilkynningar
Þriðjudaginn 18. nóvember verður haldið málþing á Laugum í Sælingsdal um leiðir til byggðafestu á sauðfjárræktarsvæðum Dalabyggðar, Stranda og Húnaþings vestra. Málþingið er lokapunktur verkefnis sem Fjórðungssamband Vestfirðinga, Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi Vestra (SSNV) hafa unnið að á undanförnum misserum.
Á málþinginu verður fjallað um byggðaþróun og nýsköpun auk þess sem flutt verða erindi um áhugaverð nýsköpunarverkefni á svæðinu og möguleika til framtíðar.
Þátttaka er öllum opin og án endurgjalds. Hægt er að skrá sig með því að smella hér.
Viðburðinn á Facebook er að finna hér.






