Byggðasafnið býður til kartöfluhátíðar
01.09.2026
Byggðasafnið í Görðum býður til árlegrar Kartöfluhátíðar laugardaginn 12. september næstkomandi kl. 14, þar sem saga, ræktun, matarmenning og menningararfur mætast í gegnum eina merkustu nytjaplöntu landsins. Boðið verður upp á skemmtilegan fyrirlestur í stúkuhúsinu, kartöflukonfekt og Jarðepla-Jói og Selið Grænmeti selja bæjarbúum ferskt grænmeti.
Í ár mun Ingólfur Guðnason fræða okkur um ræktun kartöflunnar. Ingólfur er garðyrkjufræðingur og einn af frumkvöðlum lífrænnar ræktunar á Íslandi. Hann útskrifaðist frá Garðyrkjuskólanum árið 1980 og stofnaði ásamt eiginkonu sinni, Sigrúnu Elfu Reynisdóttur, garðyrkjustöðina Engi í Laugarási árið 1985. Þar stunduðu þau meðal annars lífræna ræktun og voru brautryðjendur í ræktun ferskra kryddjurta.

Fyrirlesarar hátíðarinnar hafa síðastliðin fjögur ár frætt gesti um mismunandi hluti:
Þannig hefur hátíðin þróast frá því að vera bara um Akraneskartöfluna yfir í sögu kartöflunnar í heiminum, matarsögu, hungursneyð, ræktun og íslenska menningarsögu.

Einnig er gaman að nefna að eftir fyrstu Kartöfluhátíðina árið 2022 var komið upp kartöflugarði við íbúðarhúsið Sanda á safnasvæðinu. Síðan þá hafa nemendur Brekkubæjarskóla komið á hverju vori til að setja niður kartöflur og tekið þær upp að hausti. Garðurinn er því bæði lifandi minnisvarði um kartöflusögu Akraness og hluti af skóla- og safnastarfi í bænum.