Breyttur fundartími bæjarstjórnar í haust
16.09.2026
Almennt - tilkynningar
Bæjarstjórn hefur ákveðið að fundir hennar í haust hefjist kl. 16:00 í stað kl. 17:00, eins og verið hefur. Ákvörðunin var tekin á síðasta fundi, þann 8. september.
Breytingin tekur til komandi funda sem samkvæmt fundardagskrá eru:
-
22. september
-
13. október
-
27. október
-
10. nóvember
-
24. nóvember
-
8. desember
Á lokafundi bæjarstjórnar árið 2026, sem haldinn verður 8. desember, verður tekin ákvörðun um fundartíma eftir áramót og fram á vor.





