Fara í efni  

Breytingar í A deild Brúar lífeyrissjóðs

Þann 1. júní næstkomandi verða breytingar gerðar á réttindaöflun í A deild Brúar lífeyrissjóðs.  

Eftirfarandi breytingar á A deild koma til framkvæmda 1. júní 2017:

  • Réttindaávinnslu A deildar er breytt úr jafnri réttindaávinnslu yfir í aldurstengda réttindaávinnslu.
  • Lífeyrisaldur er samræmdur við almennan vinnumarkað og verður 67 ár.
  • Lífeyristaka getur sem fyrr hafist á milli 60 og 70 ára aldurs.
  • A deild er viðhaldið en þeir sem greiða áfram iðgjald til sjóðsins fara yfir í aldurstengda réttindaávinnslu. Mismunur á réttindum í jafnri og aldurstengdri ávinnslu er mætt með sérstöku framlagi, lífeyrisauka, sem launagreiðendur greiða til sjóðsins.
  • Réttindi þeirra sem byrjaðir eru á lífeyri þann 31. maí 2017 og þeirra sem hafa náð 60 ára aldri á sama tíma verða ekki skert eða aukin þó svo til skerðingar eða réttindaaukningar komi hjá öðrum sjóðfélögum.
  • Réttindi annarra sjóðfélaga verða framvegis bundin tryggingafræðilegri stöðu og geta lækkað eða hækkað eftir afkomu sjóðsins. Þetta á bæði við um áunnin réttindi fyrir 1. júní næstkomandi og framtíðarréttindi sjóðfélaga.

Nýir sjóðfélagar eftir 1. júní 2017

  • Sjóðfélagar sem byrja að greiða til sjóðsins eftir 1. júní 2017 ávinna sér réttindi sem eru aldurstengd og bundin afkomu sjóðsins.

Áhrif á sjóðfélaga sem áttu aðild að A deild fyrir 1. júní

  • Áunninn réttindi þeirra sjóðfélaga sem eiga aðild að A deild fyrir breytingarnar verða ekki skert við breytinguna vegna framlags launagreiðenda til sjóðsins. Réttindi geta þó framvegis hækkað eða lækkað eftir afkomu sjóðsins

Nánari upplýsingar um breytingarnar má finna hér á heimasíðu Brúar.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00