Fara í efni  

Breytingar á áætlun strætó vegna framkvæmda

Breytingar verða á áætlun Akranesstrætó vegna gatnaframkvæmda í bænum. Framkvæmdir eru þegar hafnar á Suðurgötu og áætlað er að framkvæmdir við umferðarljósin á Stillholti hefjist á föstudag.

Nánari útlistanir og skýringarmyndir er að finna hér fyrir neðan. 



Suðurgata
: áætluð lokun 28. maí – 5. júní.
Leið 1: Ekur eins og leið 2, Akursbraut, Hafnarbraut, Bárugötu og Vesturgötu.
Stoppar við: Hafnarbraut og Vesturgötu (merkt með grænum punktum á mynd).





Á næstunni hefjast einnig framkvæmdir við umferðarljósin við Stillholt.

Stillholt Kirkjubraut: áætluð lokun 5. – 11. júní.
Leið 1: Hjáleið um Skagabraut
Stoppar við hvorn enda Skagabrautar (grænir punktar á mynd).


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu