Breyting á grenndarstöðvum
30.10.2026
Nú um mánaðamótin verða grenndarstöðvar við Bíóhöllina og Byggðasafnið aflagðar. Allir gámar verða fjarlægðir af þeim stöðvum.
Á grenndarstöðinni fyrir aftan bókasafnið verða gámar fyrir pappír og plastumbúðir einnig fjarlægðir. Þar verða einungis gámar fyrir gler og málma áfram í einhvern tíma.
Íbúum er bent á Gámu fyrir losun pappa og plastumbúða, sem er án endurgjalds.
Minnt er á að í Gámu er alltaf opið á fimmtudagskvöldum til kl. 20.00.





