Götulokun og breyting á akstursleið strætó
18.08.2026
Almennt - tilkynningar
Hluta Háholts verður lokað fyrir umferð frá kl. 8 að morgni fimmtudags og til kl. 15 á föstudag. Breyting verður á akstursleið Akranesstrætó þessa sömu daga (20. og 21. ágúst) vegna endurnýjunar á rafdreifikerfi á Háholti.
Opið verður fyrir gangandi umferð.
Leið 1 ekur um Stillholt í stað Háholts þessa daga, en breytinguna má skoða betur á meðfylgjandi myndum.





