Fara í efni  

Bókasafnsdagurinn á Akranesi

Fjölskyldustund á Vökudögum á Bókasafni Akraness.
Fjölskyldustund á Vökudögum á Bókasafni Akraness.

Bókasafnsdagurinn verður haldinn hátíðlegur á Bókasafni Akraness á morgun þann 8. september. Markmið dagsins er að beina augum að mikilvægi bókasafnsins í samfélaginu og er yfirskrift dagsins „Lestur er bestur – fyrir alla“.

Í hádeginu, kl. 12:15 verða Skagakonurnar og kvenrithöfundarnir Brynja Einarsdóttir og Anna Lára Steindal með upplestur út nýju bókunum sínum. Upplesturinn verður einnig endurtekinn síðdegis sama dag kl. 16:30.

Um morguninn, koma nemendur úr 1. bekk Brekkubæjarskóla og Grundaskóla í heimsókn og fá óvæntan glaðning í tilefni af degi læsis, en 8. september er einnig dagur læsis. Það er IBBY á Íslandi í samstarfi við Mál og menningu sem gefa börnunum úrvalsbókina Nesti og nýir skór. Bókin geymir sögur, myndir og ljóð frá fyrri tímum – sögur sem foreldrar, kennarar, ömmur og afar þekkja og munu njóta þess að kynna fyrir börnum sínum. Tilgangur gjafarinnar er að kynna yngstu kynslóðina fyrir barnamenningararfinum í von um að hann verði þeim gott veganesti á lestrarferðalagi lífsins. 

Sjáumst á Bókasafni Akraness!


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00