Bjarkarhlíð þjónustar Akranes
01.09.2026
Almennt - tilkynningar
Við vekjum athygli á því að Bjarkarhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, þjónustar Akranes og er með mánaðarlega viðveru í bænum. Öll ráðgjöf er ókeypis.
Hlutverk Bjarkarhlíðar er að bjóða áfallamiðaða ráðgjöf, stuðning og upplýsingar fyrir þolendur ofbeldis af öllum kynjum, 18 ára og eldri.
Hægt er að bóka ráðgjöf með Noona eða í s. 553 3000.







