Fara í efni  

Aukin áhersla á barnafjölskyldur í nýjum samningi við ÍA

Steinar Adolfsson starfandi bæjarstjóri og Gyða Bergþórsdóttir formaður ÍA handsala hér samninginn. …
Steinar Adolfsson starfandi bæjarstjóri og Gyða Bergþórsdóttir formaður ÍA handsala hér samninginn. Að baki þeim standa fulltrúar úr stjórn ÍA, bæjarfulltrúar Akraneskaupstaðar, sviðsstjóri mennta- og menningarsviðs, framkvæmdastjóri ÍA og forstöðumaður íþróttamannvirkja.

Frístundastyrkur verður hækkaður, unglingar í landsliðum verða ekki fyrir tekjutapi í vinnuskóla meðan þau eru á æfingum eða í keppni og aðildarfélög ÍA eiga kost á bókhaldsþjónustu. Þetta þrennt er meðal nýjunga sem nýr þjónustusamningur Akraneskaupstaðar við ÍA felur í sér. Samningurinn var undirritaður í dag, tekur gildi um næstu áramót og er til fimm ára.

“Áhersla er sem fyrr á forvarna- og uppeldisgildi íþrótta og áframhaldandi uppbyggingu Akraness sem öflugs íþróttabæjar,” segir Dagný Hauksdóttir sviðsstjóri mennta- og menningarsviðs Akraneskaupstaðar. “Eitt af meginmarkmiðunum er að tryggja að sem flestir íbúar eigi kost á að taka þátt í íþróttum óháð bakgrunni eða aðstæðum. Lögð er áhersla á fjölbreytt starf, aukna þátttöku og að draga úr brottfalli barna og ungmenna úr íþróttum.”

Stutt við barnafjölskyldur
Samningurinn gerir ráð fyrir áframhaldandi rekstrarstyrkjum til ÍA og aðildarfélaga þess. Þá er einnig kveðið á um sérstakan stuðning við barna- og unglingastarf og afreksíþróttir. Með samningnum er lögð sérstök áhersla á aukinn stuðning við barnafjölskyldur, en frístundastyrkur til barna og ungmenna mun hækka um 20% árlega á árunum 2027-2030. Styrkupphæðir verða áfram þrepaskiptar eftir fjölda barna á heimili, sem jafngildir systkinaafslætti.
Jafnframt er gert ráð fyrir viðbótarfjárstuðningi til þeirra aðildarfélaga ÍA sem halda hækkunum á æfingagjöldum innan marka kjarasamninga. Markmiðið er að tryggja að aukinn frístundastyrkur skili sér með beinum hætti til barna og fjölskyldna og auka þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi.

Ýmsar nýjungar
Í samningnum er kveðið á um nýtt, sveigjanlegt vinnufyrirkomulag fyrir ungmenni á aldrinum 13–17 ára, sem valin eru í landsliðshópa. Þau geta unnið hjá Vinnuskóla Akraness á meðan þau sinna æfingum og keppni sem gerir þeim kleift að sameina íþróttaiðkun og vinnu án tekjutaps.
Þá er gert ráð fyrir auknum stuðningi við rekstur bandalagsins með uppbyggingu á bókhaldsþjónustu fyrir aðildarfélögin til að styrkja faglega umgjörð starfsins og létta á sjálfboðaliðum.
Þjónustusamningurinn felur auk þess í sér húsnæðisstuðning á formi samnings um afnot ÍA af Kirkjuhvoli, sem nýtist sem húsnæði fyrir íþróttafólk og starfsfólk á vegum aðildarfélaga ÍA.

Fjárframlög til ÍA
Árleg fjárveiting Akraneskaupstaðar til Íþróttabandalags Akraness samkvæmt samningnum er um 96 milljónir króna og er hún vísitölu- og íbúafjöldatryggð. Til viðbótar veitir Akraneskaupstaður ÍA árlegan styrk að fjárhæð 12 milljónir króna í formi húsaleigustyrks vegna Kirkjuhvols. “Akraneskaupstaður fagnar áherslum samningsins sem undirstrika mikilvægi íþróttahreyfingarinnar fyrir líf og þroska barna og ungmenna sem og það veigamikla hlutverk sem hún gegnir í félagslegri umgjörð samfélagsins á Akranesi,” segir Dagný. “Samstarf Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness er og hefur verið einstaklega gott. Það er áfram forgangsverkefni bæjaryfirvalda að styðja við framúrskarandi íþróttastarf á Akranesi, börnum, ungmennum og samfélaginu öllu til heilla.”

Áfram ÍA og íþróttabærinn Akranes!


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu