Appelsínugul viðvörun á morgun
Akraneskaupstaður vekur athygli íbúa á að Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula veðurviðvörun fyrir Faxaflóa og Akranes. Viðvörunin tekur gildi frá og með klukkan 7 í fyrramálið (26. mars) og mun standa til 13 sama dag.
Spáin gerir ráð fyrir SA 20-28m/s. Líkur eru á talsverðri snjókomu eða slyddu með slæmu skyggni og versnandi færð. Einnig er hætta á foktjóni og er fólk er hvatt til að tryggja lausamuni.
Mikilvægt er að forsjáraðilar barna hafi í huga að röskun getur orðið á skóla, frístundastarfi og skipulögðum æfingum vegna veðursins og Akraneskaupstaður hvetur forsjáraðila til að fylgja börnum í eða úr skóla eða frístundastarfi.
Búast má við talsverðum samgöngutruflunum. Fólk er hvatt til að sýna aðgát, fylgjast með veðurspám og vitja barna sinna.





