Alltaf frítt í strætó!
27.08.2026
Almennt - tilkynningar
Nú þegar skólarnir eru hafnir að nýju er kjörið tækifæri til að minna á að á Akranesi er gjaldfrjáls ferðamáti í boði fyrir alla íbúa.
Á virkum dögum er í boði innanbæjarstrætó, nefndur Akranesstrætó. Notkunin er gjaldfrjáls fyrir alla, bæði íbúa og gesti. Nánari upplýsingar um leiðakerfi og tímaáætlun er hægt að sjá með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.
Bærinn býður einnig upp á svokallaðan Frístundastrætó, en honum er ætlað að auðvelda börnum og ungmennum í okkar heilsueflandi bæ að komast á íþróttaæfingar og í annað frístundastarf eftir að skóla lýkur. Hann gengur í tvær klukkustundir á virkum dögum á starfstíma grunnskólanna. Ekki er nauðsynlegt að skrá börn í frístundastrætó.





