Fara í efni  

Alheimshreinsun 15. september (World Cleanup Day)

Þann 15. september verður haldinn í fyrsta skipti Alheimshreinsunardagurinn sem leggur áherslu á að allir íbúar þessarar jarðar nýti daginn til þess að hreinsa sitt umhverfi. Landvernd, Blái herinn, Plastlaus september, JCI Ísland og plokkara hreyfingin sjá um undirbúning alheimshreinsunar á Íslandi en þennan dag munu tugmilljónir sjálfboðaliða í 150 löndum taka höndum saman og hreinsa umhverfi sitt um allan heim í nafni átaksins Let´s Do It! World.

Akraneskaupstaður vill hvetja alla bæjarbúa, unga sem aldna, fyrirtæki, stofnanir og hópa til að taka þátt í hreinsun og leggja sitt að mörkum í mikilvægu og verðugu verkefni með því að minnka rusl og draga úr notkun einnota plastumbúða. Allir geta haft áhrif!

Hópar, einstaklingar og fyrirtæki eru hvött til að TAKA ÞÁTT og skipuleggja eigin hreinsun en allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Landverndar


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00