Fara í efni  

Akraneskaupstaður óskar eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga

Akraneskaupstaður óskar eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga fyrir árið 2026. Umhverfisviðurkenningar eru veittar árlega þeim sem hafa lagt sitt af mörkum í að fegra umhverfi sitt í bænum með einum eða öðrum hætti.

Hér má sjá hverjir hlutu verðlaunin á síðasta ári. 

Óskað er eftir tilnefningum í 7 mismunandi flokkum:

  • Falleg einbýlishúsalóð - þar sem horft er til umhirðu húss og lóðar, hönnunar, notkunarmöguleika og fjölbreytileika í gróðri.
  • Falleg aðkoma – þar sem horft er til samspils milli götu, húss og hönnunar þar sem framhliðar húsa eru andlit heimilisins.
  • Falleg fjölbýlishúsalóð - þar sem horft er til umhirðu húss og lóðar, hönnunar, notkunarmöguleika og fjölbreytileika í gróðri.
  • Tré ársins – þar sem horft er til útlits og menningarlegs gildis einstakra trjáa.
  • Snyrtilegt umhverfi fyrirtækis – eru veitt fyrirtæki sem er til fyrirmyndar hvað snyrtilegt umhverfi varðar.
  • Samfélagsverðlaun - eru veitt hópum eða einstaklingum sem hafa unnið óeigingjarnt starf í þágu umhverfisins.
  • Hvatningarverðlaun – eru veitt þeim sem hafa staðið að endurbótum húss/ lóðar og tekist vel til.

Frestur til að skila inn tilnefningum er 20. ágúst næstkomandi og er það gert með að smella á hnappinn hér að neðan.

Tilnefning til umhverfisviðurkenninga


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu