Akranes hlýtur viðurkenningu sem Barnvænt sveitarfélag

Í dag, 2. júní 2025, hlaut Akraneskaupstaður formlega viðurkenningu frá UNICEF á Íslandi sem Barnvænt sveitarfélag.
Þetta markar mikilvægan áfanga í þeirri vegferð bæjarins að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í alla stjórnsýslu og starfsemi sveitarfélagsins. Verkefnið „Barnvænt sveitarfélag“ miðar að því að tryggja að réttindi barna séu virt og að börn hafi raunveruleg áhrif á samfélagið sitt.
Í gegnum þetta ferli hefur Akraneskaupstaður skuldbundið sig til að hlusta á raddir barna, virða skoðanir þeirra og taka þær alvarlega við ákvarðanatöku. Til að ná þessari viðurkenningu hefur bærinn unnið að umfangsmikilli aðgerðaáætlun sem felur í sér 17 aðgerðir til að styrkja stöðu barna í samfélaginu. Þessar aðgerðir snúa meðal annars að aukinni fræðslu um réttindi barna, bættri þjónustu og aukinni þátttöku barna í ákvörðunum sem varða þau. Viðurkenningarathöfnin fór fram í dag í öllum leik- og grunnskólum á Akranesi þar sem var dansað og sungið saman og áfanganum fagnað.
Allir skólar fengu afhent viðurkenningarskjal sem staðfestir þátttöku þeirra í verkefninu, ásamt leikjakössum með sumardóti til að hvetja til leikgleði og útivistar. Þessi viðurkenning er staðfesting á því að Akraneskaupstaður leggur metnað í að skapa samfélag þar sem börn njóta virðingar, öryggis og hafa tækifæri til að hafa áhrif á eigið líf og umhverfi.
Nánari upplýsingar um verkefnið „Barnvænt sveitarfélag“ og innleiðingu Barnasáttmálans má finna á vefsíðu UNICEF á Íslandi.
Við hlökkum til að sýna ykkur afraksturinn og segja ykkur meira frá.
Til hamingju Akraneskaupstaður og til hamingju öll börn á Akranesi.