Fara í efni  

70 ára afmæli Dreyra

Félagar í Hestamannafélaginu Dreyra munu sýna sig og sjá aðra á Skaganum laugardaginn 6. maí næstkomandi með því að fara í miðbæjarreið niður að Akratorgi. Tilgangurinn með bæjartúrnum er 70 ára afmæli félagsins sem var þann 1. maí síðastliðinn og að minna á hestamennsku sem er stunduð í jaðri bæjarfélagsins.

Lagt verður af stað frá hesthúsahverfinu í Æðarodda kl. 14 og stefnt niður Þjóðbraut, Skagabraut, Kirkjubraut, Akratorg, Suðurgötu að Sementsverksmiðju - Áning á grasflötinni ofan við Sementsverksmiðju - Jaðarsbraut út með Langasandi, að Leynisbraut, upp með golfvelli og heim í Æðarodda. 

Í áningunni á túninu við Sementsverksmiðju geta bæjarbúar komið og hitt félagsmenn dreyra og klappað hestunum.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00