Almyrkvinn, sem svo margir hafa beðið eftir, skellur á kl. 17.47 á morgun. Rétt rúmur sólarhringur er því til stefnu og mikil spenna enda tæp 2 þúsund ár frá því síðast sást almyrkvi frá Akranesi!

Von er á einhverjum rútum með ferðamönnum í heimsókn og við tökum að sjálfsögðu vel á móti þeim. Björgunarfélag Akraness verður með vakt við bæði Breiðina og Innnesveg, en reiknað er með að helstu samkomustaðir verði við Akranesvita og Langasand. Breiðin verður lokuð við Lambhúsastíg og við hvetjum þá bæjarbúa sem ætla að mæta til að ganga eða hjóla á staðinn.

Götulýsing mun ekki kvikna meðan á almyrkva stendur svo ljósmengun er haldið í lágmarki til að almyrkvinn megi njóta sín sem best.

Akraneskaupstaður þiggur með mikilli ánægju tögg á samfélagsmiðlum og myndasendingar af almyrkvanum og aðdraganda hans.
Fréttamaður RÚV hefur sömuleiðis óskað eftir myndum og myndböndum af stemningunni til að birta á fréttavakt sinni sem stendur frá kl. 13 á morgun. Efnið má senda á frettir@ruv.is.
...og við stólum á að allir séu meðvitaðir um nauðsyn þess að eiga sólmyrkvagleraugu til að passa upp á augun.
Góða skemmtun!
Leiðbeiningar fyrir rútur