Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2025
30.04.2026
Ársreikningur Akraneskaupstaðar fyrir árið 2025 var lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn nú á þriðjudag, þann 28. apríl. Honum var vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn sem fer fram þann 12. maí næstkomandi.
Eins og kom fram í frétt hér á heimasíðu kaupstaðarins þann 17. apríl síðastliðinn er rekstrarniðurstaða samstæðunnar jákvæð sem nemur um 293,5 milljónum króna, en í áætlunum var gert ráð fyrir 101 milljóna króna tapi. Í þeirri frétt er einnig að finna samantekt á helstu niðurstöðum.
Vegna innleiðingar á nýju málakerfi hjá Akraneskaupstað er ekki hægt að birta fylgiskjöl með fundargerðum eins og venja er. Ársreikningurinn er því aðgengilegur hér fyrir neðan ásamt kynningu bæjarstjóra á reikningnum og helstu niðurstöðum.





