Umræðufundur um almannatryggingar
Viðburður
Hvenær
21. febrúar kl. 11:00-12:30
Hvar
Stillholt 16-18
Opinn upplýsinga- og umræðufundur um almannatryggingar og málefni eldri borgara og öryrkja.
Samfylkingarfélagið á Akranesi býður til opins upplýsinga- og umræðufundar um almannatryggingar og málefni eldri borgara og öryrkja.
Gestur fundarins er Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir sem hefur setið í velferðarnefnd Alþingis fyrir hönd Samfylkingarinnar. Hún mun fjalla um þær breytingar sem nú eru í vinnslu á almannatryggingakerfinu, meðal annars tengingu bóta við launaþróun og einföldun regluverksins.
Markmið fundarins er að veita upplýsingar um stöðu mála á Alþingi og heyra sjónarmið og reynslu íbúa hér á Akranesi.
Kaffi og léttar veitingar í boði.
Öll hjartanlega velkomin - óháð flokkslínum.





