Málað og músík
Vökudagar
Hvenær
26. október kl. 17:00-18:00
Hvar
Akranesviti
Verð
1500
Í vitanum verður boðið upp á að mála með náttúrulegum steinalitum og eggi á lítið blað og enda á að gera það að barmmerki til að taka með sér heim og borga fyrir það 1500 kr. Undir máluninni hljómar hljóðverk á öllum hæðum vitans sem félagar úr kórnum Huldur syngja og Dagur Bjarnason stjórnar hljóðfæraleik.





