Hvernig getur Akranes orðið ferðaþjónustubær?
Viðburður
Hvenær
18. febrúar kl. 17:00-19:00
Hvar
Brekkubæjarskóli
Miðvikudaginn 18. febrúar næstkomandi stendur Akraneskaupstaður fyrir opnum fundi og vinnustofu fyrir íbúa sem vilja taka þátt í að móta framtíð ferðaþjónustu á Akranesi, en bærinn vinnur nú að mótun nýrrar ferðaþjónustustefnu.
Fundurinn verður haldinn í sal Brekkubæjarskóla milli kl. 17 og 19.
Á dagskrá eru ýmis spennandi erindi um stöðu og tækifæri í ferðaþjónustu.
-Pétur Óskarsson formaður Samtaka fyrirtækja í ferðaþjónustu.
-Margrét Björk Björnsdóttir og Kristján Guðmundsson frá Markaðsstofu Vesturlands kynna helstu áherslur í starfsemi þeirra og hvernig sú vinna getur nýst í uppbyggingu ferðamála á Akranesi.
-Sigurður Jökull Ólafsson framkvæmdastjóri Cruise Iceland: "Hvernig tökum við á móti skemmtiferðaskipum?"

Að erindum loknum tekur við borðvinna þar sem íbúar fá tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.
Það eru spennandi tímar framundan á Akranesi! Þín rödd skiptir máli.