Bjarni Þór - Opin vinnustofa og gallerí

Vökudagar
Hvenær
23. október - 1. nóvember
Hvar
Gallerí Bjarni Þór, Kirkjubraut
Það verður ýmislegt um að vera í galleríinu hjá Bjarna og Ástu - Það verður opið Gallerí og Bjarni heldur sýningu um Bínu Bálreiðu - Elín Dögg sýnir prentverk ,,óorð - Óður til óþægilegra orða". Börn af leikskólanum Vallarseli mæta og syngja Bínulagið.
Hvetjum öll áhugasöm til að líta við í galleríð hans Bjarna í miðbænum - Einum af okkar fremsta Listafólki á Akranesi.