Yfirkjörstjórn tekur við framboðslistum á föstudag
Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga rennur út á hádegi á föstudag, þann 10. apríl. Yfirkjörstjórn Akraness mun taka við framboðslistum þann dag milli klukkan 10:00 og 12:00 að Dalbraut 4, 300 Akranesi, nánar tiltekið í fundarherberginu Lindinni (gengið inn um aðalinngang og þaðan til vinstri).
Áður hefur verið vakin athygli á því að við þessar kosningar verður heimilt að nýta rafrænt meðmælendakerfi á Ísland.is, en kerfið verður opið fyrir skráningu til kl. 12:00 á föstudag. Hverjum framboðslista sem skilað er skal fylgja yfirlýsing um stuðning við listann og fyrir hvaða stjórnmálasamtök hann er fram boðinn, frá kjósendum í hlutaðeigandi sveitarfélagi. Hjá sveitarfélagi af þeirri stærð sem Akraneskaupstaður er skulu að lágmarki vera 40 meðmælendur og hámarksfjöldi er tvöföld sú tala eða 80 meðmælendur.
Sveitarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 16. maí næstkomandi. Kjörstaður verður í Grundaskóla og mun kjörfundur standa frá klukkan 09:00 til 22:00.
Yfirkjörstjórn hvetur alla hlutaðeigandi til að kynna sér fyrirkomulagið vel og tryggja að framboðsgögn berist innan auglýsts tímafrests.





