Fara í efni  

Vorhreinsun á Akranesi framlengd

Vorhreinsun íbúa, fyrirtækja og stofnana hefur verið framlengd um viku og lýkur því 11. maí í stað 4. maí. Bæjarbúar, ungir sem aldnir eru hvattir til að fagna vori og taka þátt í hreinsun og fegrun lóða og umhverfis í þágu allra bæjarbúa. Gámar verða staðsettir á ákveðnum stöðum í bænum á tímabilinu og geta íbúar og fyrirtæki skilað þar endurgjaldslaust því sem til fellur við vorhreinsunina. Gámar undir garðaúrgang eru nú á hverri stöð innan íbúðahverfa. 

Hér er hægt að skoða yfirlitsmynd af staðsetningu gáma. 

Ætlast er til að sorp sé flokkað og verða gámar merktir með viðeigandi flokkunarmerkjum. Aldraðir og öryrkjar geta óskað eftir að fá aðstoð við að sækja staka þunga eða stóra hluti.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00