Tímamótum fagnað á sumardaginn fyrsta
17.04.2026
Opið hús verður í Brekkubæjarskóla og íþróttahúsinu við Vesturgötu á sumardaginn fyrsta, nánar tiltekið fimmtudaginn 23. apríl milli kl. 13 og 15.
Bæði skólinn og íþróttahúsið hafa verið gerð upp og endurbætt með glæsilegum hætti og tilgangurinn með opna húsinu er að gefa bæjarbúum kost á að sjá hvernig til hefur tekist.
Það verður einnig frítt í sund fyrir bæjarbúa þennan dag, bæði í Bjarnalaug og Jaðarsbakkalaug. Bjarnalaug verður opin frá kl. 10-15, Jaðarsbakkalaug frá 9-19 og Guðlaug frá 10-18.
Hér fyrir neðan má sjá auglýsingu með dagskrá og viðburðinn á Facebook má sjá með því að smella hér.






