Tilnefningar til bæjarlistamanns Akraness 2026
20.04.2026
Árlega útnefnir Akraneskaupstaður bæjarlistamann til eins árs í senn. Menningar- og safnanefnd Akraneskaupstaðar óskar eftir tillögum frá almenningi um bæjarlistamann Akraness árið 2026. Hér má sjá hver hafa verið kjörin bæjarlistamenn Akraness í gegnum árin.
Menningar- og safnanefnd mun fara yfir allar tillögur sem berast og verða niðurstöður kynntar á Þjóðhátíðardaginn, þann 17. júní. Fólk er hvatt til að kynna sér vel þær reglur sem í gildi eru um bæjarlistamann, en reglurnar má sjá hér. Frestur til að skila inn tillögu er til og með 4. maí næstkomandi.





