Fara í efni  

Tillaga að breytingu deiliskipulags Akratorgsreitar vegna Laugarbrautar 20

Bæjarstjórn Akraness samþykkti þann 14.05.2024 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Akratorgreits, vegna Laugabrautar 20 skv. 1. mgr. 43. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin nær eingöngu til lóðarinnar Laugarbrautar 20. Í breytingu felst að bætt er við 288 m2 byggingarreit fyrir um 280 m2 færanlegar stofur á suðurhluta lóðar sem snýr að Akurgerði. Byggingarreitur er 12m á breidd og 24,3m á lengd og nær að lóðarmörkum á suðurhlið við Akurgerði líkt og önnur hús við götuna. Mænishæð skal vera undir 4 metrum. Lóðin verður áfram leiksvæði, gróin að hluta. Nýtingarhlutfall lóðar skal vera undir 0.5. Að öðru leyti gilda fyrri skilmálar.

Hægt er að nálgast deiliskipulagsbreytinguna og skila inn athugasemdum á Skipulagsgáttin (skipulagsgatt.is), heimasíðu Akraneskaupstaðar Akraneskaupstaður og í þjónustuveri að Dalbraut 4. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast fyrir 5. júlí 2024 í gegnum Skipulagsgátt Skipulagsgáttin (skipulagsgatt.is).

Skipulagsfulltrúi Akraneskaupstaðar

Tillaga að deiliskipulagsuppdrætti


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00