Spurt og svarað um jarðhitaleit
Líkt og greint var frá fyrir skemmstu hafa Veitur óskað eftir leyfi til að bora rannsóknarholu til að leita eftir heitu vatni á Akranesi, nánar tiltekið við Jaðarsbakka. Tilgangurinn er að freista þess að tryggja heitt vatn til húshitunar í vaxandi samfélagi, en Veitur telja nokkrar líkur á að heitt vatn finnist á þessum stað á Akranesi í því magni að það verði góð viðbót við hitaveituna á Skaganum.
Framkvæmdin er í grenndarkynningu til 4. mars næstkomandi og hægt er að senda inn athugasemdir í gegnum Skipulagsgátt.
Ýmsar spurningar hafa komið upp bæði um framkvæmdina og hvað verði um holuna til framtíðar. Þeim hefur nú verið svarað í skjali sem birt er í Skipulagsgátt og má sjá með því að smella hér.
Nánari upplýsingar um framkvæmdina má einnig finna á vef Veitna með því að smella hér.





