Samningur undirritaður um sölu á Landsbankahúsinu
Nú hefur endanlega hefur verið gengið frá undirritun samnings um sölu á Landsbankahúsinu, en eins og greint var frá um miðjan janúar hefur húsið verið selt og mun hýsa hótel og veitingastað í framtíðinni. Kaupendur höfðu tíma eftir það til að huga nánar að ástandi hússins og í millitíðinni hefur einnig verið gengið frá samningum varðandi höfundarrétt á húsinu.
Líkt og fram hefur komið er kaupandinn Hraun fasteignafélag ehf. en þeir Ívar Freyr Sturluson og Guðjón Pétur Lýðsson skrifuðu undir samninginn fyrir hönd félagsins.

Nú er í gangi vinna við deiliskipulag, en kaupendur hafa óskað eftir heimild til að byggja hæð ofan á húsið. Að öðru leyti er ætlunin að húsið haldi upprunalegum stíl og einkennum eins og kostur er.
„Þetta eru tímamót fyrir Akranes,” sagði Haraldur Benediktsson þáverandi bæjarstjóri um sölu hússins í janúar og fulltrúi Hrauns sagðist sjá mikil tækifæri í Akranesi sem áfangastað fyrir ferðamenn enda búi bærinn yfir sterkri sérstæöðu hvað varðar náttúru, sögu og nálægð við höfuðborgarsvæðið, en einnig í öflugu samfélagi og miðbæ sem hefur burði til frekari uppbyggingar.
Á myndinni hér efst í fréttinni má sjá (frá vinstri): Sigurð Pál Harðarson sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs, Guðmund Ingþór Guðjónsson formann skipulags- og umhverfisráðs, Ívar Frey Sturluson frá Hrauni fasteignafélagi, Harald Benediktsson fyrrverandi bæjarstjóra, Guðjón Pétur Lýðsson frá Hrauni fasteignafélagi, Ragnar Baldvin Sæmundsson bæjarfulltrúa og Valgarð Lyngdal Jónsson forseta bæjarstjórnar.





