Fara í efni  

Rekstur Bíóhallarinnar boðinn út

Akraneskaupstaður óskar eftir rekstraraðila til að annast rekstur Bíóhallarinnar.

Um er að ræða rekstur og umsjón Bíóhallarinnar á Akranesi frá 1. júlí 2026 til 31. desember 2029, með möguleika á framlengingu. Bíóhöllin er sögufrægt menningarhús frá árinu 1942 og skal starfsemi í húsinu taka mið af menningarhlutverki þess og sögu. Rekstraraðili skal standa fyrir fjölbreyttri menningarstarfsemi, þar á meðal reglubundnum bíósýningum, tónleikum, leiksýningum og öðrum samfélags- og menningarviðburðum.

Útboðsgögn eru eingöngu aðgengileg á rafrænu formi í gegnum útboðsvef á slóðinni https://akranes.ajoursystem.net.

Tilboðum skal skilað með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef fyrir kl. 11 föstudaginn 12. júní. Fundargerð opnunarfundar verður send öllum bjóðendum.

Nánari upplýsingar


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu