Opið fyrir umsóknir í Vinnuskóla
04.05.2026
Almennt - tilkynningar
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Vinnuskóla Akraness fyrir unglinga í 9. og 10. bekk og 17 ára.
Sótt er um í gegnum umsóknarvefinn Vala Vinnuskóli, rafrænt kerfi sem heldur utan um umsóknir, samskipti og vinnutíma. Nota þarf rafræn skilríki til að komast inn á vefinn og hefja umsóknarferlið.
Umsóknarfrestur er til 29. maí og vinna hefst 11. júní á fyrsta tímabili.





