Nýtt viðmót fyrir byggingarleyfi
Akraneskaupstaður hefur nú innleitt nýtt og notendavænt umsóknarviðmót fyrir byggingarleyfi, þróað af Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS).
Með innleiðingunni bætist sveitarfélagið í hóp þeirra sveitarfélaga á landinu sem þegar hafa tengst kerfinu, en alls eru þau orðin 20 talsins. Stefnt er að því að öll sveitarfélög á landinu verði komin inn í kerfið árið 2027.
Nýja viðmótinu, sem er aðgengilegt á byggingarleyfi.hms.is, er ætlað að einfalda og samræma umsóknarferli og útgáfu byggingarleyfa. Markmiðið er meðal annars að bæta yfirsýn yfir stöðu uppbyggingar á Íslandi og stuðla að faglegri og betri mannvirkjagerð í framtíðinni.
Innleiðingin er jafnframt liður í áframhaldandi stafrænni þróun hjá Akraneskaupstað. Kerfið leiðbeinir umsækjendum í gegnum ferlið og stuðlar að því að gögn berist samræmd og í betri gæðum. Það einfaldar vinnslu mála hjá byggingarfulltrúa og öðrum fagaðilum sem koma að afgreiðslu byggingarmála.
Allar virkar umsóknir um byggingarleyfi á Akranesi sem borist hafa í gegnum íbúagátt Akraneskaupstaðar verða færðar yfir í nýja kerfið og verða aðgengilegar þar í gegnum HMS. Með því skapast samfelldari og skýrari yfirsýn yfir stöðu mála fyrir bæði umsækjendur og sveitarfélagið.
Gagnlegar upplýsingar og leiðbeiningar má sjá með því að smella á hnappinn fyrir neðan.





