Fara í efni  

Nýtt deiliskipulag Kirkjubrautar og breyting á skipulagi nærliggjandi reita

Auglýsing vegna nýs deiliskipulags Kirkjubrautar og breytingar á deiliskipulagi Arnardalsreits, Stofnanareits, Akratorgsreits og Miðbæjarreits.

Nýtt deiliskipulag Kirkjubrautar fyrir gatnarýmið við Kirkjubraut og Kalmansbraut sem afmarkast af Merkigerði til suðurs og Esjubraut til norðurs, samtals um 2 ha svæði. Tillagan nær yfir breytingar á göturými við Kirkjubraut og Kalmansbraut. Markmið skipulagstillögunnar er gerð bæjargötu sem býður upp á fjölbreytta samgöngumáta; gangandi, hjólandi, bíla og almenningssamgöngur. Jafnframt að styðja við atvinnulíf á jarðhæð.

Samþykkt var á fundi bæjarstjórnar þann 27. janúar 2026 að nýtt deiliskipulag fyrir Kirkjubraut verði auglýst skv. 1. mgr. 41. Gr skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að setja fram athugasemdir á Skipulagsgátt (https://skipulagsgatt.is/issues/2025/284). Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi föstudaginn 27. mars 2026 í gegnum Skipulagsgátt.


Breyting á deiliskipulagi Arnardalsreits
(289/2025), Stofnanareits (287/2025), Akratorgsreits (286/2025) og Miðbæjarreits (290/2025) til samræmis við nýtt deiliskipulag Kirkjubrautar fyrir gatnarýmið við Kirkjubraut og Kalmansbraut sem afmarkast af Merkigerði til suðurs og Esjubraut til norðurs, samtals um 2 ha svæði.

Samþykkt var á fundi bæjarstjórnar þann 27. janúar 2026 að nýtt deiliskipulag fyrir Kirkjubraut verði auglýst skv. 1. mgr. 41. Gr skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að setja fram athugasemdir á Skipulagsgátt með því að skoða tengd mál (https://skipulagsgatt.is/issues/2025/284) eða leita beint eftir málsnúmerum innan sviga hér fyrir ofan innan Skipulagsgáttar. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi föstudaginn 27. mars 2026 í gegnum Skipulagsgátt.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu