Náttúrufræðistofnun - nýjar höfuðstöðvar á Akranesi
		
					04.11.2024			
										
	Samkvæmt ákvörðun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra verða nýjar höfuðstöðvar Náttúrufræðistofnunar á Akranesi. Ráðherra undirritaði viljayfirlýsingu þess efnis þann 3. nóvember, við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) um að styðja við uppbyggingu starfsstöðva Náttúrufræðistofnunar og fleiri opinberra stofnana ráðuneytisins á Vesturlandi.
 
					 

 
  
 



