Fara í efni  

Molta í boði fyrir bæjarbúa

Nú er kominn vænn hóll af ferskri moltu upp við “skeifuna” þar sem íbúar losa sig við úrgang úr görðum og geta íbúar nálgast hana sér að kostnaðarlausu. Moltan er unnin úr lífrænum úrgangi – matarleifunum sem heimili í bænum hafa safnað í brúnu pappírspokana – og er því áþreifanleg niðurstaða sameiginlegs átaks íbúa og sorphirðu við að draga úr urðun og nýta hráefni betur.

Dálítil lykt getur verið af moltunni í fyrstu, en hún hverfur fljótt. Mikilvægt er þó að hafa í huga að molta er áburður, ekki mold, og á því ekki að nota hana eins og mold. Moltan er mjög næringarrík og getur brennt viðkvæmar plöntur ef hún er notuð óblönduð. Best er að blanda henni saman við mold í hlutföllunum 1 á móti 3 áður en hún er sett í beð eða potta.

Íbúar eru hvattir til að nýta sér þetta góða hráefni og sækja moltu í hauginn. Með því er verið að loka hringrásinni og matarleifarnar sem áður hefðu farið í urðun eru nú orðnar að verðmætum áburði sem nýtist í görðum bæjarbúa.

Nokkrir fróðleiksmolar um moltu

  • Molta er lífrænn áburður sem bætir jarðveg og eykur frjósemi hans.
  • Hún inniheldur mikið af næringarefnum sem plöntur þurfa, en er of sterk óblönduð.
  • Molta bætir rakaheldni jarðvegs og stuðlar að heilbrigðara vistkerfi í beðum og görðum.
  • Með því að nota moltu minnkar þörfin fyrir tilbúinn áburð og dregið er úr urðun lífræns úrgangs.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu