Menningarverðlaun Akraness 2025 - Tilnefningar óskast
04.09.2025

Setningarhátíð Vökudaga 2024, fulltrúar ÍATV ásamt Guðríði Sigurjónsdóttur formanni menningar- og safnanefndar og Haraldi Benediktssyni bæjarstjóra.
Menningar- og safnanefnd óskar eftir tilnefningum til menningarverðlauna Akraness 2025.
Á menningarhátíðinni Vökudögum hafa hin árlegu menningarverðlaun verið veitt. Ár hvert er óskað eftir tilnefningum frá bæjarbúum og hvetjum við öll áhugasöm til að senda inn sínar tillögur um þá einstaklinga eða hópa sem hafa glætt menningu bæjarins lífi með eftirtektarverðum hætti.
Frestur til að tilnefna er til og með 14. september 2025
Nálgast má eyðublað fyrir tilnefningar hér.
Ef ykkur vantar innblástur í valinu, þá hafa eftirtalin hlotið menningarverðlaun Akraness:
2024 ÍATV fyrir skrásetningu og miðlun Íþróttaviðburða
2023 Heimildarmyndahátíðarinnar Ice docs fyrir þeirra frábæra menningarstarf
2022 Kellingar fyrir frábærara sögugöngur um Akranes.
2121 Flosi, Gunnar Sturla og Einar Viðarsson fyrir framlag þeirra til listgreina innan skólasamfélagsins.
2020 Árbók Akurnesinga fyrir ómetanlega heimildarvinnu fyrir komandi kynnslóðir.
2019 Útvarp Akranes fyrir frábæra og fjölbreytta dagskrá.
2018 Ásmundur Ólafsson fyrir hans stóra og mikilvæga greinasafn um merka atburði og framfaramál í sögu Akraness.
2017 Guðbjörg Árnadóttir fyrir störf hennar við skagaleikflokkinn, og fjöldann allann af leiklistartengdum viðburðum á Akranesi.
2016 Club 71 fyrir viðburðahald (þorrablót og brekkusöng t.d, ágóði hefur runnið til íþrótta- og menningarstarfs).
2015 Vitinn, félag áhugaljósmyndara á Akranesi
2014 Heiðrún Hámundardóttir tónmenntakennari
2013 Guðmundur Sigurðsson hagleiks- og hugsjónamaður
2012 Vinir hallarinnar fyrir menningar- og listalíf
2011 Lárus Sighvatsson fyrir starf sitt sem skólastjóri Tónlistarskólans
2010 Flosi Einarsson tónlistarmaður
2009 Þjóðlagasveit Tónlistarskóla Akraness
2008 Bókaútgáfan Uppheimar
2007 Haraldur Sturlaugsson og Ingibjörg Pálmadóttir vegna Haraldarhúss
Hér má lesa meira um verðlaunahafana síðustu ára.