Landsbyggðarstrætó fær undanþágu frá lokun ganganna
07.04.2026
Þær fréttir voru að berast frá Vegagerðinni rétt í þessu að landsbyggðarstrætisvagnar fá undanþágu frá lokun Hvalfjarðarganga og tímaáætlun þeirra helst óbreytt meðan á viðhaldi ganganna stendur.
Eins og fram hefur komið í fréttum verður Hvalfjarðargöngum lokað tímabilið 7. apríl - 29. maí frá kl. 21.30 að kvöldi til kl. 6.00 að morgni.
Nánari upplýsingar um tímaáætlun vagnanna er að finna inni á heimasíðu og þjónustuveri Strætó bs.





