Jólatré sótt 9.-10. janúar
		
					03.01.2023			
										
	Akraneskaupstaður mun sjá um hirðingu jólatrjáa daganna 9.-10. janúar næstkomandi og er það í boði fyrir alla bæjarbúa. Eina sem þarf að gera er að setja trén út við götu. Ath. eingöngu jólatré verða tekin, ekki annað sorp. Akraneskaupstaður hvetur bæjarbúa til að ganga vel um og hreinsa upp eftir flugelda, sprengjur, kökur og fleira sem falla til vegna nýárs- og þrettándagleði.
					

 
 



