Jákvæð rekstrarniðurstaða Akraneskaupstaðar
Ársreikningur Akraneskaupstaðar fyrir árið 2025 var lagður fram í bæjarráði þann 16. apríl og vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn sem fram fer þann 28. apríl næstkomandi.
Rekstrarniðurstaða A-hluta er jákvæð um 408,5 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir að rekstrarafgangur yrði um 13,7 milljónir króna. Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta saman (samstæðan) er jákvæð sem nemur um 293,5 milljónum króna, en í áætlunum var gert ráð fyrir 101 milljóna króna tapi.
Veltufé frá rekstri er 1.598 milljónir króna hjá samstæðunni sem sýnir það fjármagn sem reksturinn gaf til að standa undir framkvæmdum og afborgunum lána. Veltufé frá rekstri er hærra en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir eða sem nemur 665 milljónum króna.
Skuldaviðmið samstæðu lækkar í 65% úr 67% frá árinu á undan og er vel undir lögbundnu hámarki sem er 150% samkvæmt sveitarstjórnarlögum. Skuldaviðmið A hluta fer einnig lækkandi og er 68% en var 71% árið 2024.
Helstu þættir ársreiknings fyrir árið 2025 eru svohljóðandi:
- Skatttekjur eru 755 milljónum króna hærri en á fyrra ári. Framlög Jöfnunarsjóðs hækkuðu um 115 milljónir króna frá fyrra ári. Aðrar tekjur hækka einnig um 192 milljónir króna.
- Launagjöld án lífeyrisskuldbindinga samstæðu nema alls 8.840 milljónir króna sem er 76 milljónum króna minna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Launagjöld hækka um 492 milljónir króna frá fyrra ári.
- Handbært fé í árslok er 547 milljónir króna og hækkar það um 32 milljónir króna frá fyrra ári.
- Fjárfesting í innviðum er samtals 1.570 milljónir króna. Meðal helstu framkvæmda voru 797 milljónir króna í íþróttamannvirki, 607 milljónir króna í skólahúsnæði og 163 milljónir króna í götur og gangstíga.
Helstu rekstrartölur og lykiltölur A-hlutans:
- Rekstrarniðurstaða er jákvæð um 409 milljónir króna sem er 395 milljóna króna betri niðurstaða en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir.
- EBITDA framlegð hækkar milli ára og er 4,03% en á árinu 2024 var hún 2,24%.
- Veltufjárhlutall er 1,0 og lækkar frá árinu á undan.
- Skuldahlutfall lækkar og er 110% í árslok 2025 en var 121% í árslok 2024.
- Eiginfjárhlutfall er í árslok 44% og hækkar um 1% stig frá árinu 2024.
- Veltufé frá rekstri er 13,34% og styrkist talsvert frá árinu á undan þegar það var 6,7%.
- Launhlutfall án lífeyrisskuldbindinga er 58,7% en hlutfallið var 60,8% á árinu 2024.





