Innritun grunnskólabarna á Akranesi
10.02.2026
Innritun barna sem hefja skólagöngu í grunnskólum á Akranesi næstkomandi haust fer fram fyrir lok febrúar mánaðar.
Unnið er að breytingum á fyrirkomulagi innritunar og mun ferlið fara fram í gegnum vefgáttina Ísland.is. Á næstunni fá foreldrar nánari upplýsingar um framkvæmd innritunar, verklag og tímasetningar.
Upplýsingarnar verða birtar á miðlum Akraneskaupstaðar, hjá leikskólum bæjarins og í gegnum Völu-kerfið.





