Hundasvæðið lokað í nokkra daga
04.05.2026
Hundaeigendur athugið!
Hundasvæðið verður lokað frá miðvikudegi 6. maí og líklega fram til þriðjudags 12. maí vegna framkvæmda á svæðinu.
Ástæðan er akstur í gegnum svæðið frá Elínarvegi á vinnuvélum vegna efnisflutninga til stígagerðar vestan megin á svæðinu.
Vonast er til að framkvæmdirnar gangi fljótt og vel svo hægt sé að opna svæðið aftur sem fyrst.






