Bókhald bæjarins opnað fyrir íbúa
07.05.2026
Akraneskaupstaður hefur opnað bókhald bæjarins til að auka aðgengi íbúa að fjárhagsupplýsingum. Opna bókhaldinu er skipt í tekju- og gjaldagreiningu og áhersla er lögð á skýra framsetningu í notendavænu viðmóti.
Kerfið er gagnvirkt og hægt er að velja hvern málaflokk, þjónustuþátt, tekju- eða gjaldalið og skoða hvernig skiptingin er. Gögn verða birt fyrir hvern ársfjórðung, en hægt er að skoða gögn þrjú ár aftur í tímann og gera samanburð milli tímabila.
Opna bókhaldið er sótt með beinum hætti í bókhald Akraneskaupstaðar og allar tölur eru birtar með fyrirvara um kerfisvillur.





