Fara í efni  

Akraneskaupstaður hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar

Hér má sjá fulltrúa þeirra sveitarfélaga, fyrirtækja og stofnana sem hlutu viðurkenninguna í gær. Ha…
Hér má sjá fulltrúa þeirra sveitarfélaga, fyrirtækja og stofnana sem hlutu viðurkenninguna í gær. Harpa Hallsdóttir mannauðsstjóri Akraneskaupstaðar tók við viðurkenningunni fyrir hönd Akraneskaupstaðar. Mynd: Silla Páls.

Akraneskaupstaður hlaut í gær viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA við hátíðlega athöfn, en þetta er fjórða árið í röð sem bærinn hlýtur þessa viðurkenningu. Sextán sveitarfélög, 90 fyrirtæki og 22 opinberir aðilar hlutu viðurkenninguna, en Jafnvægisvogin hefur þann tilgang að auka á jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga á Íslandi. Viðurkenninguna hljóta því þeir þátttakendur sem hafa náð markmiði verkefnisins um jöfn kynjahlutföll í framkvæmdastjórn eða efsta lagi stjórnunar.

„Það er ánægjulegt að sjá hversu mörg fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög í Jafnvægisvog FKA sinna jafnréttismálum af metnaði. Þrátt fyrir þennan góða árangur er ljóst að enn er langt í land með að ná fullu jafnrétti. Það er mikilvægt að hvert og eitt fyrirtæki, stofnun eða sveitarfélag skoði stöðu sína og krefjist þess að kynjahlutfall í æðstu stjórnunarstöðum sé sem jafnast, því jafnrétti er ekkert annað en ákvörðun,“ segir Bryndís Reynisdóttir verkefnastjóri Jafnvægisvogarinnar.

Viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA fylgir tré að gjöf til gróðursetningar í Jafnréttislundi FKA, sem viðurkenningarhafar gróðursetja sjálfir í lundinum í dag. Með því geta þátttakendur lagt sitt af mörkum til að draga úr kolefnisfótspori og jafnframt sýnt stuðning við jafnréttismál með táknrænum hætti. Við val á trjám í lundinn er horft til þess að velja margar ólíkar tegundir af trjám, sem tákn um þann fjölbreytileika sem Jafnvægisvogin stuðlar að.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00