Frístundaheimilið Brekkusel
Opnunartími frístundar er frá lokum skóladags á yngsta stigi og til kl. 16:15 alla virka daga. Börn eru skráð í frístund í gegnum skráningarkerfi Völu – Foreldrar eru hvattir til að ganga úr skugga um að skráning sé í lagi og að allar upplýsingar séu réttar, svo sem upplýsingar um íþróttaæfingar og/eða aðrar tómstundir.
Ef þið hafið spurningar, ábendingar eða vangaveltur varðandi starfsemi frístundar, hvetjum við foreldra eindregið til að hafa samband við deildarstjóra.
Við hlökkum til góðs samstarfs og vonum að börnin ykkar eigi ánægjulegar og uppbyggilegar stundir í Brekkuseli.
HELSTU UPPLÝSINGAR
Deildarstjóri Brekkusels
Herdís Magnúsdóttir
Hafa samband
Símanúmer 4331327
Netfang herdis@brekko.is
Opnunartími skrifstofu:
Frá lok skóladags til 16:15
Staðsetning





