Turninn - Frístundaklúbbur
Turninn dagstarf er þjónusta ætluð börnum og ungmennum með mismunandi stuðningsþarfir á aldrinum 10-20 ára.
Starfsemin hefst þegar hefðbundnum skóladegi lýkur og er opin til kl 16:00 alla virka daga.
Starfsemin er skipulög út frá þörfum hvers og eins þar sem unnið er eftir einstaklingsáætlunum og vikuplönum sem taka mið af styrkleikum og áhugasviðum hvers og eins. Lögð er áhersla á fyrirsjáanleika, öryggi og jákvætt umhverfi þar sem börnin fá tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum, svo sem skapandi starfi, hreyfingu og ýmsum leikjum.
Markmið Turnsins er að:
- Stuðla að vellíðan og jákvæðri sjálfsmynd barna og ungmenna
- Efla félagsfærni og samskiptahæfni
- Styrkja sjálfstæði og ábyrgð í daglegu lífi
- Skapa tækifæri til þátttöku og virkni við hæfi hvers og eins
Deildarstjóri stoðþjónustu
Linda Ósk Alfreðsdóttir
Símanúmer Þorpsins 4331250
Símanúmer Turnsins 8601254
Netfang torpid@torpid.is
Opnunartími
13:00 - 16:00 alla virka daga
Staðsetning
Þjóbraut 13, 300 Akranes





