Fréttir
Lýðheilsugöngur í september á Akranesi – komdu út að ganga!
		
					03.09.2018			
										
	Akraneskaupstaður og Íþróttabandalag Akranes í samstarfi við Ferðafélag Íslands endurtaka leikinn frá síðasta ári og bjóða upp á lýðheilsugöngur alla miðvikudaga í september. Frábærir sjálfboðaliðar leiða göngurnar og verður frítt í sund að loknum göngum fyrir göngugarpa. Göngurnar hefjast alltaf kl. 18:00 
Lesa meira
	Tilkynning um tímabundna lokun Ketilsflatar
		
					03.09.2018			
										
	Vegna framkvæmda verður lokað fyrir umferð um hluta Ketilsflatar frá þriðjudeginum 4. september í allt að eina viku fram til 11. september. Um er að ræða gatnagerð við Ketilsflöt frá gatnamótum upp að Garðalundi. 
Lesa meira
	Laus störf í liðveislu hjá Akraneskaupstað
		
					29.08.2018			
															Laus störf
							
	Um er að ræða hlutastörf í liðveislu við börn og fullorðna. Helstu markmið liðveislu er að rjúfa félagslega einangrun, stuðla að aukinni félagsfærni og aðstoða fólk við að njóta menningar og félagslífs. 
Lesa meira
	Fyrsta skóflustungan tekin á byggingu nýs fimleikahúss á Akranesi
		
					28.08.2018			
										
	Í dag þann 27. ágúst fengu Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri, Marella Steinsdóttir formaður Íþróttabandalags Akraness og Guðmundur Claxton formaður Fimleikafélags Akraness þann heiður að taka fyrstu skóflustunguna að nýju fimleikshúsi sem verður sambyggt íþróttahúsinu á Vesturgötu. 
Lesa meira
	Bæjarstjórnarfundur 28. ágúst
		
					25.08.2018			
										
	1277. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 28. ágúst kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á fundinn á FM 95,0.  Bæjarmálafundir flokkanna hefjast í september.
Lesa meira
	Samið við Skófluna hf. um gerð göngustígs við Garðalund og á Breið
		
					20.08.2018			
										
	Þriðjudaginn 14. ágúst síðastliðinn var undirritaður verksamningur við Skófluna hf. um gerð göngustígs frá Ketilsflöt að Garðalundi og að útbúa steyptan stíg/ götu á Breið.  Alls bárust þrjú tilboð í verkið sem opnað var 17. júlí síðastliðinn og var Skóflan hf. lægstbjóðandi með 32,6 m.kr. Framkvæmdir hefjast nú í ágúst og á að vera lokið eigi síður en 30. september næstkomandi.
Lesa meira
	Umsóknir um starf persónuverndarfulltrúa
		
					20.08.2018			
										
	Akraneskaupstaður auglýsti starf persónuverndarfulltrúa laust til umsóknar í lok júní síðastliðinn með umsóknarfresti til og með 26. júlí. Umsóknir voru 12 talsins en tveir umsækjendur drógu umsókn sína tilbaka. Ráðningarferlið stendur yfir.
Lesa meira
	Samið við fyrirtækið Spennt ehf. um byggingu fimleikahúss á Akranesi
		
					16.08.2018			
										
	Mánudaginn 13. ágúst síðastliðinn var undirritaður samningur milli Akraneskaupstaðar og fyrirtækisins Spennt ehf. um byggingu fimleikahúss á Akranesi. Framkvæmir hefjast nú í ágúst og er áætluð verklok í desember 2019. Alls bárust fimm tilboð í verkið sem var opnað þann 31. maí síðastliðinn og var Spennt ehf. lægstbjóðandi með samtals 607 m.kr.  
Lesa meira
	Faxabraut - lokun
		
					09.08.2018			
										
	Faxabraut verður lokuð fyrir umferð frá og með fimmtudegi 9. ágúst til og með laugardegi 11. ágúst. Umferð flutningabíla er þó heimil og skulu ökumenn sýna aðstæðum tillitsemi og fara með varúð. Lokunin er vegna þess að verktaki við niðurrif Sementsverksmiðjunnar er að skipa út brotajárni þessa daga. 
Lesa meira
	Skemmtiferðaskipið Le Boreal kemur til Akraness fimmtudaginn 9. ágúst
		
					08.08.2018			
										
	Skemmtiferðaskipið Le Boreal hefur boðað komu sína til Akraness fimmtudaginn 9. ágúst næstkomandi samkvæmt fréttatilkynningu Faxaflóahafna. Skipið kemur kl. 08:00 um morguninn og fer kl. 19:00 um kvöldið.
Lesa meira
	
					

 
 



