Fréttir
Jens Heiðar nýr slökkviliðsstjóri slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar
		
					15.01.2020			
										
	Á fundi bæjarstjórnar Akraness þann 14. janúar síðastliðinn var samþykkt einróma að ráða Jens Heiðar Ragnarsson slökkviliðsstjóra slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar.
Lesa meira
	Arnardalur fagnar 40 ára afmæli
		
					14.01.2020			
										
	Félagsmiðstöðin Arnardalur fagnaði 40 ára afmæli þann 12. janúar síðastliðnum en félagsmiðstöðin er elsta einingin í frístundamiðstöðinni Þorpinu. Haldið verður upp á áfangann með ýmsum viðburðum á árinu. 
Lesa meira
	Íbúaþing um atvinnulíf á Akranesi
		
					13.01.2020			
										
	Akraneskaupstaður efnir til íbúaþings þar sem atvinnulíf á Akranesi verður til umræðu. Markmið þingsins er að fá íbúa og fyrirtækjaeigendur að borði og ræða uppbyggingu atvinnulífs á Akranesi með sérstakri áherslu á Breið og nágrenni, í samstarfi við Brim og fleiri fyrirtæki. 
Lesa meira
	Bæjarstjórnarfundur 14. janúar
		
					10.01.2020			
										
	1305. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 14. janúar kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á fundinn á FM 95,0 og horfa á beina útsendingu á facebooksíðu Akraneskaupstaðar.
Lesa meira
	Jakob Svavar kjörinn Íþróttamaður ársins 2019 á þrettándanum
		
					10.01.2020			
										
	Jakob Svavar Sigurðsson var kjörinn Íþróttamaður Akraness í annað sinn þann 6. janúar síðastliðinn. Jakob Svavar hefur um langt árabil verið einn af bestu íþróttaknöpum á landinu og unnið marga íslandsmeistaratitla auk heimsmeistaratitils. 
Lesa meira
	Jólatré sótt 8.-14. janúar
		
					07.01.2020			
										
	Uppfært 10. janúar: Vegna veðurs hefur ekki tekist að fara upp allan bæinn og sækja jólatré. Stefnt er að eftir helgi að fara fleiri ferðir um bæinn og sækja jólatré. Vinsamlega komið trjánum fyrir í skjóli  á meðan. 
Akraneskaupstaður mun sjá um hirðingu jólatrjáa daganna 8.-10. janúar og er það í boði fyrir alla bæjarbúa. Eina sem þarf að gera er að setja trén út við götu. Ath. eingöngu jólatré verða tekin, ekki annað sorp.
Lesa meira
	Breyting á verklagi innheimtu hjá Akraneskaupstað
		
					03.01.2020			
										
	Bæjarstjórn Akraness samþykkti á fundi sínum þann 24. október síðastliðinn tillögu um breytt verklag varðandi innheimtu hjá Akraneskaupstað. Breytingin felur í sér útvistun á innheimtu sveitarfélagsins en markmiðið er að bæta utanumhald innheimtu með skýrara verklagi og að jafnræði milli skuldara sé tryggt. 
Lesa meira
	Þráinn Ólafsson slökkviliðsstjóri lætur af störfum
		
					02.01.2020			
										
	Þráinn Ólafsson slökkviliðsstjóri lét af störfum þann 31. desember síðastliðinn eftir 45 ára farsælan starfsferil hjá Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Þráinn hóf störf sem almennur slökkviliðsmaður hjá slökkviliðinu þann 5. mars árið 1974 og tók við starfi slökkviliðsstjóra þann 1. september árið 2005. 
Lesa meira
	Guðlaug um jólin
		
					22.12.2019			
										
	Guðlaug er opin á Þorláksmessu frá kl. 10-16 og verður fjölmargt um að vera á opnunartíma:
Lesa meira
	 
					 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

 
  
 



