Lokið - Vitastígur Breið og stígur við Garðalund
		
					26.06.2018			
															Útboð
							
	Útboði er lokið. Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í stígagerð á Breið og við Garðalund á Akranesi. Skila skal verkinu fyrir 30. september 2018.
Um er að ræða eftirfarandi framkvæmdir:
- Útbúa nýjan steyptan stíg niðrá Breið
 - Útbúa nýjan malbikaðan hjóla- og göngustíg við Garðalund.
 
Helstu stærðir:
- Jarðvegsskipti um 3000 m3
 - Steyptur stígur 750 m²
 - Malbikaður stígur 510 m²
 
Útboðsgögn eru afhent á stafrænu formi frá og með miðvikudeginum 27. júní með því að senda tölvupóst á netfangið stigagerd@akranes.is, þar sem fram kemur nafn bjóðanda ásamt netfangi, nafni og símanúmeri tengiliðs. Tilboð verða opnuð á bæjarskrifstofu Akraneskaupstaðar að Stillholti 16-18, 1. hæð, þriðjudaginn 17. júlí 2018 kl. 10:00.
					

 
 



