Styrkir til greiðslu fasteignaskatts 2025
02.12.2025
Akraneskaupstaður auglýsir eftir umsóknum um styrki til greiðslu fasteignaskatts fyrir aðila með starfsemi á sviði menningar- íþrótta- æskulýðs,- tómstunda,- eða mannúðarmála.
Sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar með skráningu inn á þjónustugátt.
Umsóknarfrestur er til og með 8. desember 2025. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu kaupstaðarins www.akranes.is





