Fara í efni  

Söltun á stígum og götum bæjarins

Veðurspá næstu daga bíður upp á hlýnandi veður en fer kólnandi þegar líður á vikuna. Starfsmenn áhaldahúss bæjarins vinna nú hörðum höndum við að salta stíga og helstu íbúagötur bæjarins, byrjað verður að salta við stofnanir og í framhaldinu farið um íbúagötur bæjarins. Minnum fólk á að fara gætilega í færðinni.

Við bendum bæjarbúum á að hægt er að nálgast bæði salt og  sand í áhaldahúsi bæjarins, að Laugarbraut 6. Hafa þarf ílát meðferðis undir saltið og sandinn.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu